Innlent

Bíti á jaxlinn, bölvi í hljóði og beiti oddinum fast

MYND/Valgarður

Guðni Ágústsson, varafomaður Framsóknarflokksins, segir skoðanakannanir sýna grafalvarlega stöðu flokksins, en nú síðast í kvöld sýndi skoðanakönnun á Akureyri að flokkurinn myndi tapa tveimur af þremur bæjarfulltrúum sínum þar ef kosið yrði nú. Hann hvetur framsóknarmenn til að bíta á jaxlinn, bölva í hljóði og beita oddinum fast næstu vikur.

Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, sem gerð var fyrir NFS, leiðir í ljós að ef gengið yrði til bæjarstjórnarkosninga á Akureyri nú væri meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna fallinn. Fylgi síðarnefnda flokksins mælist 14,3 prósent á Akureyri en var 24,1 prósent í síðustu kosningum. Könnunin kemur í kjölfar tveggja kannanna á Akranesi og í Árborg sem sýna báðar að Framsóknarflokkurinn á undir högg að sækja víðar en í Reykjavík.

Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir stöðuna grafalvarlega en bendir þó á að á Akureyri hafi 32 prósent kjósenda ekki tekið afstöðu. Stundum hafi verið sagt að Framsóknarflokkurinn sé sofandi risi á milli kosninga og viku til tíu dögum fyrir kosningar fari framsóknarmenn að hugsa hvað þeir eigi að kjósa og þá komist þeir að þeirri niðurstöðu að Framsóknarflokkurinn í bænum eða landinu hafi staðið sig vel og kjósi hann.

Guðni telur ekki að slakri málefnasstöðu flokksins í sveitarfélögunum sé um að kenna og segir flokkinn ekki eiga þá stöðu skilið sem upp sé komin. Það sé merkilegt að flokkurinn skuli mælast svona í skoðanakönnunum á meðan samstarfsflokkurinn sé jafnvel að bæta við sig.

Aðspurður hvort þetta endurspegli hugsanlega vantraust á flokksforystuna segist Guðni ekkert ætla að fullyrða um það. Flokkurinn og forystan þurfi að fara yfir það hverjar séu skýringarnar. Spurður hvort ekki þurfi að hafa hraðar hendur þar sem stutt sé til kosninga segir Guðni að vika sé langur tími í pólitík. Hann hvetji framsóknarmenn nú til að taka á, bíta á jaxlinn, bölva í hljóði og beita oddinum fast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×