Líf á Mars? 7. desember 2006 18:57
Vísindamenn hafa fundið merki um rennandi vatn á Mars. Uppgötvunin eykur verulega líkur á að líf sé að finna á rauðu plánetunni enda er vatn ein af höfuðforsendum þess. Á Mars er að jafnaði 58 gráðu frost og súrefnisinnhald gufuhvolfsins þar er einungis 0,1%. Þrátt fyrir þessi óhagsstæðu skilyrði hafa kenningar lengi verið á kreiki um að líf fyrirfinnist á þessum nágranna okkar jarðarbúa og þær kenningar hafa fengið byr undir báða vængi á undanförnum árum. Til dæmis hafa verið leiddar að því líkur að í loftsteinum frá Mars sem fundist hafa í jöklum Suðurskautsins séu ummerki um að líf hafi verið á rauðu plánetunni fyrir nokkrum milljörðum ára. Vísindamenn Bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA voru því hróðugir í gær þegar þeir birtu ljósmyndir sem geimfarið Global Surveyor tók fyrir nokkrum árum. Á þeim má sjá breytingar á yfirborði plánetunnar sem líklegast eru af völdum rennandi vatns. Þessar uppgötvanir sanna auðvitað ekki að líf þrífist á Mars en rennandi vatn er engu að síður ein af mikilvægustu forsendum þess. Ef líf er að finna á Mars telja geimlíffræðingar líklegast að það sé undir yfirborði plánetunnar og vart þarf að taka fram að aðeins væri um afar frumstæðar örverur að ræða.
Erlent Fréttir Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira