Gilbert Arenas skoraði 60 stig gegn Lakers 18. desember 2006 13:21 Gilbert Arenas skoraði 60 stig í Los Angeles í nótt NordicPhotos/GettyImages
Gilbert Arenas fór hamförum með liði Washington Wizards í nótt þegar liðið sigraði LA Lakers 147-141 í framlengdum leik í Staples Center í Los Angeles. Arenas skoraði 60 stig fyrir Washington og var lykilmaðurinn á bak við góðan sigur liðsins í frábærum leik sem sýndur var beint á NBA TV á Fjölvarpinu. 60 stig Arenas er félagsmet hjá Washington, persónulegt met hjá leikmanninum og það mesta sem einn maður hefur skorað í einum leik í vetur. Þess má geta að aðeins goðsögnin Wilt Chamberlain hefur skorað fleiri stig í leik gegn LA Lakers í sögu félagsins. Caron Butler skoraði 27 stig fyrir Washington og Antawn Jamison skoraði 25 stig og hirti 13 fráköst. Kobe Bryant var atkvæðamestur í liði Lakers með 45 stig, 10 stoðsendingar og 8 fráköst, en liðið tók 44 þriggja stiga skot í leiknum sem er félagsmet. Vladimir Radmanovic átti sinn besta leik til þessa með Lakers og skoraði 27 stig og Luke Walton skoraði 15 stig og gaf 11 stoðsendingar. Toronto lagði Golden State 120-115 þar sem Mo Peterson skoraði 23 stig fyrir Toronto en Monta Ellis skoraði 28 fyrir Golden State. Utah vann fyrsta sigur sinn á Indiana í fjögur ár 104-94. Carlos Boozer skoraði 18 stig og hirti 11 fráköst fyrir Utah en Jermaine O´Neal skoraði 31 stig fyrir Indiana. Houston lagði LA Clippers 108-103. Yao Ming skoraði 32 stig og hirti 10 fráköst fyrir Houston en Shaun Livingston skoraði 21 stig fyrir Clippers. Loks vann Detroit sigur á Seattle 97-93. Rip Hamilton skoraði 24 stig fyrir Detroit en Rashard Lewis skoraði 25 stig og hirti 11 fráköst fyrir Seattle.
Erlendar Íþróttir Körfubolti NBA Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Íslenski boltinn Ekki Andabæjarútgáfa af norskri menningu Fótbolti Heimsmeistari hélt að hún væri með tíðaverki en endaði á sjúkrahúsi Sport Tækifæri bjóðist í fjarveru Sveindísar í lykilleik dagsins Fótbolti Andrea býr hjá breskri fjölskyldu sem styður hana til sigurs Golf Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Þrjár opnunarhátíðir á HM og stórstjörnur á þeim öllum Fótbolti Vandræðaleg auglýsing og köld kveðja Sport Fleiri fréttir Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Sjá meira