Skoðun

Einkavæðing í menntastefnu?

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um háskólastigið sem kom út nýlega er um margt merkileg. Ánægjulegt er að sjá hversu vel Háskóli Íslands kemur út þrátt fyrir skerta samkeppnisstöðu. Aftur á móti er áhyggjuefni hversu mikill aðstöðumunur er á einkareknum háskólum og opinberum. Að einkareknir háskólar skuli fá sama ríkisframlag og þeir opinberu hefur skapað óæskilegan aðstöðumun og veikt samkeppnisstöðu opinberu háskólanna af skýrslunni að dæma.



@Megin-Ol Idag 8,3p :Skýrsla ríkisendurskoðunar sýnir að auka þarf fjárframlög til Háskólans á Akureyri. Mikilli og örri fjölgun nemenda við háskólann hafa óneitanlega fylgt vaxtarverkir. Fjölgun nema þýða aukin útgjöld. Því miður virðist núverandi menntamálaráðherra ekki sýna þessu mikinn skilning. Háskólinn á Akureyri hefur fyrir löngu sannað tilverurétt sinn og vonandi fær hann tækifæri til að halda áfram að vaxa og dafna.

Að sama skapi verður að telja undarlegt að fjárframlög til Menntaskólans á Akureyri hafi verið skert um 30% á hverju ári sl. 3 ár. Einnig að forsendur fjárveitinganna hafi breyst jafn oft á tímabilinu. Jón Már Héðinsson, skólameistari MA, sagði í útskriftarræðu sinni 17. júní, að skólayfirvöld ætluðu ekki að sitja með hendur í skauti. Miðað við stöðuna væri það álitlegur kostur að gera MA að einkaskóla. Samkeppnisstaða skólans byði einfaldlega ekki upp á að reglum og forsendum fjárveitinga væri sífellt breytt. Vonandi verður þessi kostur ekki ofan á, jafnvel þó ekki sé stefnt á að taka upp skólagjöld. Gæði kennslu á ekki að vera háð framlögum fyrirtækja. Stjórnvöld verða einfaldlega að búa svo í haginn að fjárframlög standi undir rekstri skólans.



Sú spurning vaknar hvort búið sé að hrinda af stað yfirlýstri ætlun Sjálfstæðisflokksins um einkavæðingu í menntakerfinu. Markvisst sé verið að skera niður fjárframlög til opinberra skóla og skerða samkeppnisstöðu þeirra til að gera einkavæðingu girnilegri. Markmið menntakerfisins verða aldrei fjárhagsleg í mínum huga. Þau snúast fyrst og fremst um gæði menntunarinnar og hversu vel okkur tekst að búa börn og ungmenni undir lífið. Þarna kristallast grundvallarmunur á stefnu Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, sem ítrekað hefur lýst yfir vilja til einkavæðingar menntakerfisins.

Höfundur er alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×