Skoðun

Enn um Jesúm og heimsendi

Fyrir skemmstu birtist á þessum síðum greinin „Viðheldur fáfræði kristninni?“ þar sem ég benti m.a. á þá staðreynd að stór hluti fræðimanna í Bandaríkjunum og Þýskalandi hafi frá því bók Alberts Schweitzer „Leitin að hinum sögulega Jesú“ kom út árið 1906 litið á Jesúm sem heimsendaspámann. Ef eitthvað er að marka viðbrögðin sem ég hef fengið við greininni á almenningur erfitt með að trúa þessu upp á „frelsarann“. Hvað sem því líður virðist heimsendatrúin enn lifa góðu lífi innan Þjóðkirkjunnar, eins og sjá má í prédikun sr. Bolla Péturs Bollasonar „Lausn yðar er í nánd“, sem hýst er á tru.is.



Í vangaveltum sínum segir Bolli að sama hversu mikill sem hræðsluáróðurinn um fuglaflensuna og hlýnun jarðar verður séu þetta „ekki tákn um endalok heims vegna þess að þetta eru einmitt hugmyndir okkar mannfólksins um endalokin“. Bolli er á því að „Guð“ kristinna manna hafi það á sinni „könnu að ákvarða um endalokin, hvernig svo sem þau verða?“ Síðan veltir hann því upp „af hverju í ósköpunum er ég að fjalla um endalokin á þessum kyrrláta og góða tíma sem aðventan er“? Svarið er einfaldlega „að guðspjall dagsins [Lúkas, 21:25-33] fjallar um komu Jesú hina síðari er ‚himinn og jörð munu líða undir lok“, sem sýnir skýrt að með endurkomunni er „ekki einvörðungu um að ræða friðsama birtingu jólabarnsins“.



Eins og tæplega helmingur Bandaríkjamanna virðist Bolli trúa að Jesú sé væntanlegur með sverð í hendi. „Já, Jesús kemur fyrr en varir á skýi og mun dæma lifendur og dauða eins og við kristið fólk höfum játað og játum enn.“ Eina leiðin til þess að forðast skapofsa „jólabarnsins“ er að mati Bolla stöðugur undirbúningur, sem hlýtur að fela í sér að meðtaka kristna trú og rækta hana, „þannig að koma hans verði okkur í raun ekki til dóms, heldur til hjálpræðis“.

Nú ætti öllum að vera ljóst að Biblían boðar heimsendi, sem mun bresta á fyrr eða síðar. Skiptir þá litlu hvort ummerki hans megi greina í samtímanum, eins og áróðursmeistarar sjónvarpsstöðvarinnar Ómega halda fram, eða hvort hann muni koma okkur að óvörum, eins og Bolli ýjar að. Þá mun hinn friðsami Jesú skólakristinfræðinnar snúa aftur til jarðar í vondu skapi og fara, eins og Bolli gefur í skyn, með ófriði gegn öllum þeim sem ekki á hann trúa. Nú skil ég eina ástæðu þess að sr. Birgir Ásgeirsson, sem ég gagnrýndi nýlega í greininni „Þjóðkirkjan, umburðarlyndi og heimska“ (Fbl., 21/12, 2006), kallar alla þá sem hafna meintri tilvist Guðs kristinnar, þ.e. á fimmta milljarð einstaklinga, „heimskingja“: Þeir sem ekki játa trú á „jólabarnið“ eiga líklega yfir höfði sér dauðadóm þegar „það“ snýr aftur til jarðar.

Höfundur er doktor í vísindasagnfræði.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×