Wielgus sagði af sér 7. janúar 2007 12:30
Pólski biskupinn Stanislaw Wielgus sem vígja átti sem erkibiskup Varsjárborgar í dag hefur sagt af embætti eftir að í ljós kom að hann var á sínum tíma á mála hjá leynilögreglu kommúnista. Tilnefningin hans hefur af þeim sökum valdið miklum deilum í landinu. Ákvörðun sína tilkynnti Wielgus skömmu fyrir kveðjumessu Jozef Glemps, fráfarandi erkibiskups, en þar átti að vígja hann til þjónustunnar. Benedikt páfi sextándi skipaði Wielgus í embættið á föstudaginn en fljótlega eftir að skipunin var kunngjörð greindu pólskir fjölmiðlar frá því að Wielgus hefði verið heimildarmaður leynilögreglunnar á tímum kommúnistastjórnarinnar. Meðal annars átti hann að hafa njósnað um félaga sína í kaþólsku kirkjunni. Í fyrstu neitaði Wielgus ásökunum en þegar eftirlitsnefnd kirkjunnar lýsti því svo yfir að vísbendingar um fortíð hans væru áreiðanlegar viðurkenndi hann að hafa verið á mála hjá leynilögreglunni. Málið hefur valdið miklu uppnámi í Póllandi enda átti kaþólska kirkjan í landinu, undir forystu Glemps, stóran þátt í falli pólsku kommúnistastjórnarinnar. Skoðanakönnun sem gerð var um helgina sýndi að tveir þriðju hlutar þjóðarinnar vildu að Wielgus segði af sér embætti vegna málsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fleiri fréttir „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Sjá meira