Boða iðnbyltingu 10. janúar 2007 18:45
Evrópusambandið boðar iðnbyltingu í nýrri áætlun um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Framkvæmdastjórn sambandsins vill að aðildarríkin minnki útblástur gróðurhúsalofttegunda um tuttugu prósent fyrir 2020. Evrópa verði að taka forystuna í að þróa efnahag sem byggi síður á kolefnum. Það var Jose Manuel Barroso, forseti Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem kynnti tillögurnar, sem ríkisstjórnir sambandsins þurfa að samþykkja. Þær verða ræddar á leiðtogafundi í mars. Barroso benti á að hlýnað hefði í heiminum á síðasta rúma áratug og hefðu mörg hitamet verið slegin á þeim tíma. Samræma þurfi viðbrögð sambandsríkjanna við loftslagsbreytingum. Barroso sagðist þegar hafa rætt stöðu mála við Bush Bandaríkjaforseta og fulltrúa á Bandaríkjaþingi. Nauðsynlegt sé að hafa Bandaríkjamenn með í ráðum, þeir mengi mest. Barroso tók orkudeilu Rússa og Hvít-Rússa og áhrif hennar á olíuflutning til ESB ríkja sem dæmi um að treysta þurfi okrubyrgðir sambandsríkja. Síðdegis í dag bárust svo fréttir af því að útlit væri fyrir því að olíudeilan væri að leysast. Hvítrússar hefðu aflagt flutningsgjöld á olíu frá Rússlandi sem gæti orðið til þess að Rússar opni aftur fyrir streymi olíu í gegnum þær leiðslur sem liggi um Hvíta-Rússland. Það flæki þó málið að Rússar hafa krafið Hvítrússa um að skila um áttatíu þúsund tunnum af olíu sem þeir segja þá hafa stolið.
Erlent Fréttir Mest lesið Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Erlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent „Ekkert nema gott að segja fyrir gróðurinn og sálarlíf landsmanna“ Veður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent Fleiri fréttir Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Sjá meira