Tiger langt frá sínu besta á Players 11. maí 2007 11:26 MYND/AP
Besti kylfingur heims, Tiger Woods, var langt frá sínu besta á fyrsta hringnum á Players-meistaramótinu í golfi. Woods lék á 3 höggum yfir pari og er í 58.-74. sæti. Bein útsending verður á Sýn annað kvöld og á sunnudagskvöld. Tiger Woods paraði 15 holur og fékk 3 skolla. Þetta er í fyrsta sinn í fjögur ár sem hann fær ekki fugl á hringnum, síðast gerðist það á fyrsta degi á Masters 2003. Woods er á þremur höggum yfir pari og því átta höggum á eftir Phil Mickelson og Rory Sabatini. Mickelson fékk 6 fugla í gær og einn skolla. Hann lék vel við erfiðar aðstæður. Suður-Afríkumaðurinn Rory Sabatini hefur þrisvar hrósað sigri í PGA-mótaröðinni. Hann var um tíma á 6 undir pari. Chris Di Marco er einn í þriðja sæti á 4 undir pari og Peter Lonard er í fjórða sæti á 3 undir pari. Spánverjinn Sergio Garcia er á einu höggi yfir pari en teighögg hans á sautjándu braut fór í vatnið. Garcia var nærri búinn að bjarga parinu.
Golf Mest lesið Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Danmörk vann gullið og Þjóðverjar Alfreðs fá silfur Handbolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Handbolti Sér í gegnum Dag: „Hann er bara að segja þetta til að spila með Íslendinga“ Handbolti Fleiri fréttir LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira