Golf

Enduðu tíu ára sigur­göngu Banda­ríkjanna

Andri Broddason skrifar
Lið Bretlandseyja og Írlands vann frábæran endurkomu sigur í Walker-bikarnum.
Lið Bretlandseyja og Írlands vann frábæran endurkomu sigur í Walker-bikarnum. Warren Little/Getty Images

Bretlandseyjar og Írland unnu Bandaríkin í Walker-bikarnum í fyrsta skipti síðan árið 2015. Lið Bretlandseyja og Írlands náði góðri endurkomu í lokin og unnu að lokum með einu stigi.

Útlitið leit ekki vel út fyrir Bretlandseyjar og Írland þegar Bandaríkin voru þrem stigum á undan fyrir síðasta hring keppninnar. Þá voru tíu stig eftir í pottinum og ljóst að flest þeirra máttu ekki falla til Bandaríkjanna.

Af síðustu tíu leikjunum unnu Bandaríkin aðeins tvo leiki og Josh Hill tryggði Bretlandseyjum og Írlandi sigurinn með því að vinna átjándu holu og þar með leikinn gegn Tyler Watts.

Luke Poulter var í liði Bretlandseyja og Írlands og hefur hann fengið góð ráð frá pabba sínum en það er breski kylfingurinn Ian Poulter. Hann var sigursæll á sínum ferli þegar hann lék fyrir lið Evrópu í Ryder-bikarnum og hefur því Luke Poulter ekki langt að sækja hæfileikana í þessum keppnum.

Eftir að lið Bretlandseyja og Írlands vann leikinn trúðu leikmennirnir varla að þeir hefðu náð að vinna. Þetta var stór sigur fyrir liðið en Bandaríkin eru búin að vinna síðustu fimm keppnir og því sætt að fá loksins sigurinn og enda tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna.

„Við vissum hversu gott liðið þeirra var. Þeir voru færir um hvað sem er. Allt sem maður getur gert núna er að taka hattinn að ofan fyrir þá. Þeir spiluðu frábærlega,“ sagði Nathan Smith, fyrirliði bandaríska liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×