John og Sherry Daly benda hvort á annað 12. júní 2007 15:37 John Daly á ekki sjö dagana sæla NordicPhotos/GettyImages
Sherry Daly hefur svarað ásökunum eiginmanns síns, John Daly, um að hún hafi reynt að stinga hann með steikarhníf. Sherry segir að John hafi klórað sig sjálfan í andliti til að reyna að fela þá staðreynd að hann hafi verið ofurölvi á fimmtudagskvöld og misst stjórn á skapi sínu.Fregnir bárust þess efnis Vestanhafs að Sherry hefði reynt að stinga eignmann sinn og kom Daly skrámaður í andliti til keppni við TPC Southwind golfvöllinn þar sem fjölskyldan býr skammt frá. Þegar lögreglumenn bar að heimili hjónanna á föstudagskvöld voru Sherry og börnin á braut og meintur hnífur sem átti að hafa verið notaður til árásarinnar fannst hvergi.Engar kærur hafa enn verið lagðar fram í málinu en Daly sótti um nálgunarbann á Sherry sem nú hefur gert slíkt hið sama og krefst þess að hún fái í sinn hlut hús þeirra hjóna við TPC Southwind völlinn, forræði yfir börnunum og áframhaldandi vasapeninga frá eiginmanninum sem voru að hennar sögn um 15-30 þúsund Bandaríkjadalir á mánuði.Í skýrslu sem Sherry hefur látið taka af sér hjá yfirvöldum segir hún að John hafi verið að drekka mikið á fimmtudagskvöldinu og hafi fyrir vikið misst stjórn á skapi sínu. Sherry segist ennfremur hafa vaknað upp við læti í Daly umrætt fimmtudagskvöld þar sem hann hafi haft uppi meiðingar í orði og líkamsmeiðingar og hafi m.a. reynt að þröngva henni til samræðis við sig. Daly hefur neitað þessum ásökunum eiginkonu sinnar.Enn er ekki komin kæra í málinu eins og áður greinir en ef til þess kemur og annar aðilinn verður sakfelldur þá gæti dómurinn orðið þungur því bæði hafa áður komist í kast við lögin.Frétt af Kylfingur.is
Golf Mest lesið Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Danmörk vann gullið og Þjóðverjar Alfreðs fá silfur Handbolti Biður Dag afsökunar Handbolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Handbolti Fleiri fréttir LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira