Íslenski boltinn

Ólafur tekur ekki við Leikni

Ólafur Þórðarson þjálfaði Fram í sumar.
Ólafur Þórðarson þjálfaði Fram í sumar. Mynd/Eyþór

Ólafur Þórðarson mun ekki taka við þjálfun 1. deildarlið Leiknis eins og Vísir var búið að greina frá.

Heimildir Vísis hermdu að Ólafur væri langt kominn í viðræðum við Leikni og aðeins væri formsatriði að ganga frá ráðningu hans.

Greinilegt er að snuðra hefur hlaupið á þráðinn í kjölfarið.

Ólafur segir í samtali við fótbolti.net að hann útiloki ekki að taka að sér þjálfun annars liðs á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×