Úrvalsvísitalan hrundi í dag 30. september 2008 15:33 Lárus Welding, forstjóri Glitnis, og Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, þegar tilkynnt var um kaup ríkisins í Glitni í gær. Mynd/GVA
Gengi hlutabréfa í Glitni hrundi um 71 prósent í Kauphöllinni í dag og dró Úrvalsvísitöluna með sér í fallinu. Hún fór niður um 16,59 prósent og hefur aldrei lækkað jafn mikið á einum degi. Lokað var fyrir viðskipti með hlutabréf Glitnis í gær á meðan ríkið tilkynnti að það ætli að kaupa 75 prósenta hlut í bankanum fyrir 600 milljónir evra. Ætla má að ríkið taki hlutinn á 1,9 krónur á hlut. Þá féll gengi bréfa í SPRON um 9,66 prósent og Atlantic Petroleum um níu prósent. Gengi Existu fór niður um 8,26 prósent, Atorku um 5,37 prósent og Landsbankans um 5,12 prósent. Þá féll gengi bréfa í Century Aluminum, Kaupþings og Bakkavarar um fjögur prósent og meira en Eik banka, Straums, Eimskipafélagsins, Icelandair og Marel minna. Gengi bréfa í Færeyjabanka hækkaði um 2,44 prósent, Alfesca um 0,47 prósent og Össurar um 0,11 prósent í dag. Úrvalsvísitalan féll um 16,59 prósent í dag og hefur aldrei fallið jafn mikið á einum degi. Fall Glitnis vegur þar langþyngst. Vísitalan endaði í 3.396 stigum og hefur ekki verið lægri síðan í byrjun árs 2005.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Fleiri fréttir Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Sjá meira