VBS úr plús í mínus 26. ágúst 2008 13:42 Jón Þórisson, forstjóri VBS. Mynd/GVA
VBS fjárfestingarbanki tapaði 870 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 1,1 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Í tilkynningu frá bankanum segir að þótt niðurstaðan hafi verið neikvæð síni afraksturinn að grunnstarfsemi sé góð. Vöxtur er á efnahagsliðum bankans og er niðurstöðutala efnahagsreiknings 55,7 milljarðar króna. Þóknunartekjur nema 447 milljónum króna og hreinar vaxtatekjur 334 milljónum króna. Þá er eigið fé samkvæmt árhlutareikningi um 7,1 milljarður og eiginfjárhlutfall (CAD) 16,9 prósent. Í uppgjörinu kemur fram að bankinn nýtti sér sterka eiginfjárstöðu og færði varúðarfærslu sem nam 765 milljónum króna vegna mögulegrar virðisrýrnumar útlána. Einnig voru óskráðar eignir færðar niður um tæplega 400 milljónir króna. Jón Þórisson, forstjóri VBS, segir ánægjuleg að sjá þekkingu og reynslu starfsmanna hafa tryggt tekjustraum bankans þrátt fyrir öflugan mótvind á mörkuðum, ekki síst fasteignamarkaði. „Með því vitum við að hæfileikinn til viðhalda traustum tekjum bankans er til staðar, sem er mjög mikilvægt. Við gerð uppgjörsins var lögð rík áhersla á að vanmeta ekki það tjón sem aðstæðurnar geta valdið bankanum, svo sem við mat á virðisrýrnun útlána og mat á virði hlutabréfa í eigu hans. Ljóst er að ytri aðstæður verða áfram nokkuð mótdrægar en gerum ráð fyrir að það versta sé að baki. Það er því full ástæða til bjartsýni á framhaldið," segir hann.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira