Dunga tilbúinn að velja Amauri Elvar Geir Magnússon skrifar 25. desember 2008 10:23 Amauri fagnar marki.
Landsliðsframtíð Amauri, leikmanns Juventus, hefur mikið verið rædd á Ítalíu. Hann á möguleika á því að spila með ítalska landsliðinu á næsta ári eftir að hafa ekki verið í myndinni hjá Carlos Dunga, landsliðsþjálfara Brasilíu. Amauri er fæddur í Brasilíu en hefur lengi búið á Ítalíu og er giftur ítalskri konu. Marcello Lippi, þjálfari Ítalíu, hafði gefið það út að hann væri að skoða möguleikann á því að Amauri leiki fyrir ítalska landsliðið. En nú virðist Dunga hinsvegar hafa skipt um skoðun og er tilbúinn að velja Amauri til að spila fyrri Brasilíu. „Julio Cesar (markvörður Inter) hafði samband við mig og gaf Amauri sín meðmæli," sagði Dunga. „Maður getur treyst Julio og ég er tilbúinn að velja Amauri svo lengi sem hann gerir ekki kröfur um byrjunarliðssæti. Umboðsmaður hans verður að hætta að láta það út úr sér að hann spili bara fyrir Brasilíu ef hann á öruggt sæti í byrjunarliðinu." „Það er ekki hægt að gera svona kröfur. Fólk sem þekkir mig veit að svona yfirlýsingar fara í taugarnar á mér. Ekki einu sinni Pele var lofað sæti í liðinu á sínum tíma. Ég vel liðið og Amauri verður að lúta sömu reglum og Kaka og Ronaldinho gera," sagði Dunga. Amauri ætti að fá ítalskan ríkisborgararétt um áramótin en hann hefur skorað 11 mörk fyrir Juventus það sem af er tímabili. Ítalía og Brasilía mætast í vináttulandsleik í febrúar og enn er ekki ljóst með hvoru liðinu Amauri mun spila eða hvort hann spili yfir höfuð þann leik.
Ítalski boltinn Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Sjá meira