Körfubolti

ÍR skellti meisturunum

Nate Brown var öflugur í liði ÍR í kvöld
Nate Brown var öflugur í liði ÍR í kvöld Mynd/Stefán Karlsson

Tveir leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld og einni í kvennalfokk. ÍR-ingar unnu góðan sigur á Íslandsmeisturum KR í Seljaskóla 87-83 og Grindvíkingar unnu nauman heimasigur á Hamarsmönnum 89-83.

Jonathan Griffin og Páll Axel Vilbergsson skoruðu 29 stig hvor fyrir Grindavík í sigrinum á Fjölni en Anthony Drejaj var með 23 stig fyrir gestina. 

 Grindvíkingar skelltu sér í annað sæti deildarinnar með sigrinum og hafa hlotið 28 stig líkt og KR, en Keflvíkingar eru í fyrsta sætinu með 30 stig. ÍR situr í 7. sætinu með 16 stig og Hamar er sem fyrr í neðsta sæti deildarinnar með aðeins 6 stig.

Í kvennadeildinni urðu svo óvænt úrslit þegar Hamar lagði spútniklið KR 80-75 eftir framlengdan leik. KR er í þriðja sæti deildarinnar en Hamar er í botnbaráttu með aðeins 8 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×