Handbolti

Rúnar framlengir við Fram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rúnar Kárason, leikmaður Fram.
Rúnar Kárason, leikmaður Fram. Mynd/Anton

Rúnar Kárason, leikmaður Fram í handbolta, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2011.

Rúnar hefur leikið vel með Fram í vetur og þykir með efnilegri leikmönnum landsins. Fram kemur á heimasíðu Fram að hann hafi vakið athygli liða bæði í Þýskalandi og Frakklandi. Rúnar verður tvítugur í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×