Handbolti

Haukar á toppinn og jafn­tefli á Sel­fossi

Andri Broddason skrifar
Haukar sitja á toppi Olís-deildar karla með fullt hús stiga.
Haukar sitja á toppi Olís-deildar karla með fullt hús stiga. Anton/Vísir

Æsispennandi leikir voru í Olís-deild karla í handbolta í dag þegar næstum heil umferð fór fram. Haukar rétt unnu Aftureldingu og Selfoss og Stjarnan þurftu að deila saman stigum.

Selfoss tók á móti Stjörnunni í frekar kaflaskiptum leik. Stjarnan byrjaði leikinn betur og var liðið snemma komið í fimm marka forystu og virtust Garðbæingar vera sterkara liðið í leiknum.

Selfyssingar gáfust þó ekki upp og minnkuðu forskotið smátt og smátt og aðeins var tveggja marka munur á liðunum í hálfleik.

Leikurinn varð jafn þegar Jónas Karl Gunnlaugsson kom Selfoss yfir þegar aðeins tvær mínútur voru eftir af leiknum. Í næstu sókn náði Tandri Már Konráðsson að jafna metin og hvorugt liðið náði að bæta við öðru marki og endaði leikurinn jafn 34-34.

Ísak Logi Einarsson var markahæsti leikmaður leiksins með tólf mörk fyrir Stjörnuna. Hákon Garri Gestsson var næstmarkahæsti leikmaður leiksins en hann skoraði tíu mörk fyrir Selfoss.

Haukar sóttu toppsætið

Í Hafnarfirði tóku Haukar á móti Aftureldingu þar sem við tók spennandi viðureign. Haukar tóku forystuna snemma í leiknum en Afturelding var þó aldrei langt undan.

Í hálfleik voru Haukar með þriggja marka forskot á gestina og ljóst að Afturelding þurfti að bæta sína frammistöðu til að sækja sigur. Gestirnir náðu þó aldrei að ná Haukum og endaði leikurinn með tveggja marka sigri Hauka, 32-30.

Freyr Aronsson, leikmaður Hauka, var markahæsti leikmaður leiksins með þrettán mörk og komu fimm þeirra af vítalínunni. Hákon Daði Styrmisson, leikmaður Aftureldingar, var næstmarkahæsti leikmaður leiksins með átta mörk.

FH náði öruggum sigri

FH tók á móti Víkingi í Kaplakrika í kvöld þar sem leikurinn var ágætlega jafn til að byrja með. FH-liðið var með forystuna en erfitt var fyrir liðið að stinga Víkinga af. Í hálfleik var FH með fjögurra marka forskot en það voru möguleikar fyrir Víkinga að minnka það niður.

Það reyndist ekki gerast og var lið FH mun sterkara í seinni hálfleik og enduðu heimamenn á að vinna öruggan sex marka sigur 40-34.

Jón Karl Einarsson, leikmaður Víkings, og Ágúst Guðmundsson, leikmaður FH, voru báðir með tíu mörk hvor. Ómar Darri Sigurgeirsson hjá FH var næstmarkahæstur með níu mörk.

Eftir leikina sitja Haukar á toppi deildarinnar með fullt hús stiga en Fram getur náð þeim en leik liðsins sem átti að vera í kvöld var frestað. FH situr því í öðru sæti deildarinnar með fimm stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×