Handbolti

Stór­brotin varsla Grétars tryggði Haukum mont­réttinn: „Endar alltaf í svona vit­leysu“

Aron Guðmundsson skrifar
Svona eiga grannaslagir að vera. Frábær tilþrif, dramatík og hiti
Svona eiga grannaslagir að vera. Frábær tilþrif, dramatík og hiti Vísir/Pawel

Grétar Ari Guðjónsson, markvörður Hauka, reyndist hetja liðsins í grannaslag gegn FH í toppslag Olís deildar karla í handbolta. Stórbrotin markvarsla hans undir lok leiks sá til þess að Haukar sigldu heim fyrsta sigrinum í Kaplakrika síðan árið 2024.

Leikur gærdagsins var frábær skemmtun. Bæði lið voru ósigruð og ljóst að sigurliðið myndi verma toppsæti deildarinnar.

Haukar byrjuðu betur en eftir því sem leið á seinni hálfleikinn unnu FH-ingar sig aftur inn í leikinn og þegar aðeins nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum komu þeir sér í kjörstöðu til að jafna leikinn.

Þegar aðeins nokkrar sekúndur voru eftir af leiktímanum hljópu þeir í sókn og opnuðu gátt fyrir Ómar Darra Sigurgeirsson sem gat jafnað metin með marki úr algjöru dauðafæri. Grétar Ari mætti hins vegar út á móti honum og stórbrotin markvarsla hans tryggði Haukum sigur í leiknum.

„Þetta var náttúrulega bara úrslitaskot,“ sagði Grétar Ari í viðtali við Vísi eftir leik. „Mér fannst hann hoppa svolítið nálægt markinu þannig ég ákvað að hoppa bara út á móti og vonast til að pressan væri það mikil að hann myndi ekki ná að sjá markið og ekki sjá hvað ég væri í raun kominn nálægt honum. Það virkaði í þetta skiptið en það hefur líka klikkað hundrað sinnum.“

Fyrsti sigur Hauka í Kaplakrika síðan árið 2024. Liðið er með fullt hús stiga á toppi Olís deildarinnar eftir fyrstu fjórar umferðir deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×