Handbolti

Haukar töpuðu aftur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigurbergur Sveinsson skoraði tíu mörk fyrir Hauka í dag.
Sigurbergur Sveinsson skoraði tíu mörk fyrir Hauka í dag. Mynd/Anton

Haukar töpuðu öðru sinni fyrir Nordhorn í 16-liða úrslitum EHF-bikarkeppninnar í handbolta í Þýskalandi í dag.

Báðir leikirnir fóru fram í Þýskalandi en þeim fyrri lauk með þrettán marka sigri Nordhorn á föstudaginn, 34-21.

Úrslitin voru öllu skárri í dag en Nordhorn fagnaði á endanum sjö marka sigri, 38-31. Haukar höfðu yfirhöndina í hálfleik, 18-15.

Sigurbergur Sveinsson skoraði tíu mörk fyrir Hauka, þar af fjögur úr vítum. Kári Kristján Kristjánsson skoraði fimm mörk, rétt eins og Elías Már Halldórsson.

Holger Glandorf lék síðasta leik sinn með Nordhorn í dag en hann er á leið til Lemgo. Hann kvaddi með því að skora átta mörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×