Íslenski boltinn

Fram marði Njarðvík

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Almarr hér í leik gegn ÍBV.
Almarr hér í leik gegn ÍBV. Mynd/Daníel

Úrvalsdeildarlið Fram skreið inn í sextán liða úrslit Visa-bikarkeppninnar í kvöld með naumum sigri á Njarðvík, 2-1.

Það var Almarr Ormarsson sem skoraði bæði mörk Framara og var hetja þeirra í kvöld.

Rafn Markús Vilbergsson kom Njarðvík yfir í fyrri hálfleik en Fram jafnaði fyrir hlé.

Sigurmark Almars kom síðan tuttugu mínútum fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×