Óskar Bjarni: Þeir áttu þetta skilið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. maí 2009 22:57 Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, svekktur eftir leik. Mynd/Anton
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, var vitaskuld heldur súr í broti eftir að hans menn töpuðu fyrir Haukum í baráttu liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Haukar unnu Val í Vodafone-höllinni í kvöld, 33-25, og þar með einvígi liðanna um titilinn, 3-1. „Ég er auðvitað hundfúll en ég vil óska Haukunum til hamingju. Þeir eiga þetta skilið. Þeir eru með góða vörn og markvörslu, vel skipulagðan sóknarleik og góðan þjálfara. Ég hefði þó viljað fara í oddaleik og var sannfærður um að við myndum vinna í kvöld. En það tókst ekki, því miður." „Það var auðvitað hundleiðinlegt að horfa á þá fagna á okkar heimavelli. Ég er þó stoltur af mínum strákum enda ekkert lið sem hefði í okkar stöðu getað sett meira í leikinn í seinni hálfleik og gert betur. Við vorum bara ekki að gera hlutina nægilega vel á löngum köflum. Hefðum við farið í oddaleikinn hefði allt getað gerst, ég er sannfærður um það." Valsmenn fengu nokkur tækifæri til að jafna leikinn í kvöld en nýttu þau ekki. „Við hefðum þurft að jafna og helst komast yfir. En við lékum ekki vel á löngum köflum. Varnarleikurinn var slæmur í upphafi fyrri hálfleiksins og sóknarleikurinn í upphafi síðari. Það virtist sem að þegar vörnin var að virka þá klikkaði sóknin." Óskar Bjarni er samningsbundinn Val áfram en ætlaði að bíða með allar yfirlýsingar um framhaldið sitt. „Ég er nú búinn að vera með liðið í sex ár en ég ætla að taka mér nokkra daga til að hugsa mín mál."
Olís-deild karla Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Sjá meira