Wenger hefur mikla trú á Mario Balotelli hjá Inter Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. september 2009 14:30 Mario Balotelli í leik með Inter á þessu tímabili. Mynd/AFP
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur mikla trú á Mario Balotelli hjá Inter og spáir því að hann verði spútnikstjarna Meistaradeildarinnar á þessu tímabili. Balotelli þykir vera hæfileikaríkur framherji en hann er einnig þekktur fyrir það að hafa litla stjórn á skapi sínu. West Ham var að reyna að fá Balotelli að láni frá Inter en tókst ekki. Jose Mourinho hefur átti í nokkrum erfiðleikum með Balotelli og hefur ítrekað hent honum út úr liði sínu vegna framkomu hans. Balotelli hefur komið inn á sem varamaður í fyrstu leikjum Inter á þessu tímabili. Mario Balotelli er 19 ára og 189 sentímetra framherji sem skoraði 8 mörk í 22 deildarleikjum með Inter á síðasta tímabili. Hann er fæddur í Palermo á Ítalíu en foreldrar hans komu þangað frá Ghana. „Ég mun hafa augun á Balotelli í vetur því það er leikmaður sem ég er mjög hrifinn af. Það er mín skoðun að hann geti orðið einn af þeim bestu," sagði Wenger. Balotelli er með ítalskt ríkisfang og hefur spilað 12 leiki og skorað 5 mörk með 21 ára landsliði Ítala. Hann á hinsvegar enn eftir að fá tækifæri með A-landsliðinu.
Ítalski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjá meira