Einar Andri: Karaktersigur hjá okkur Hjalti Þór Hreinsson skrifar 22. október 2009 21:37 Einar Andri Einarsson, þjálfari FH. Fréttablaðið/Heiða
Einar Andri Einarsson, þjálfari FH, var virkilega ánægður með sigur sinna manna á Akureyri í kvöld. FH vann Akureyri með þremur mörkum, 27-30. „Við missum svolítið tökin á okkar leik um miðjan fyrri hálfleik. Þá erum við að fá tvær brottvísanir í sókninni, ég fékk eina og við vorum lengi manni undir. Við misstum hausinn en náðum að róa okkur niður í hálfleik," sagði Einar og hélt áfram. „Við breyttum um vörn í seinni hálfleiknum og mér fannst það gera gæfumuninn," sagði Einar en sókn Akureyringar var mjög slök á löngum köflum. Að hluta til skrifast það að sjálfsögðu á góða vörn FH-inga. Markvarsla Pálmars Péturssonar lagði svo grunninn að 27-30 sigri FH. „Lykilatriði var að Pálmar fór að verja í byrjun seinni hálfleiks og þá kom ákveðið öryggi á vörnina. Það er frábært að taka bæði stigin hér á Akureyri, þetta var flottur karakter hjá okkur," sagði þjálfarinn. Ásbjörn Friðriksson var að spila gegn sínu gamla félagi og lék vel, skoraði þrjú mörk úr fimm skotum. „Þetta var frábær sigur. Það er ekki sjálfsagt að koma til baka þremur mörkum undir og vinna leikinn. En við fengum markvörsluna með okkur í seinni hálfleik og þá var þetta fljótt að snúast við," sagði Ásbjörn sem naut sín vel. „Það er frábært að spila hérna, alltaf gott að spila á Akureyri fyrir framan þessa áhorfendur," sagði Ásbjörn.
Olís-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Handbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Handbolti Fleiri fréttir Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Skýrsla Vals: Ekki aftur Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Ungverjar með magnaða endurkomu en hvorugt náði Íslandi að stigum EM í dag: Ísland fer alltaf Krýsuvíkurleiðina „Náðum ekki að hjálpa markvörðunum okkar nóg“ „Þeir spila hægan bolta og reyna að svæfa mann“ „Þetta er klárlega högg“ Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn „Fannst við stýra leiknum vel og láta þetta fara í okkar átt“ „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Tölurnar á móti Króatíu: 15-1 fyrir Króata í mörkum með langskotum „Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Þorsteinn inn en Andri og Elvar fyrir utan Myndir: Fjölskyldustemning í Fan Zone Elvar úr leik í átta vikur: „Hans verður sárt saknað“ Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist „Hann gæti gert fullt af sóknum léttari“ Ómar segist eiga meira inni Svona var EM-Pallborðið: Allt sem þarf að vita fyrir stórleikinn í dag Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags „Ef ég hitti Dag þá mun ég knúsa hann“ „Virkar eins og maður sé að væla“ Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Danir svöruðu fyrir Portúgalstapið og unnu Evrópumeistarana Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Sjá meira