Arnór mögulega í speglun á hné Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. mars 2009 08:30 Arnór Atlason í leik með íslenska landsliðinu í haust. Mynd/Arnþór
Arnór Atlason verður ekki með íslenska landsliðinu gegn Eistlandi á sunnudaginn er liðin mætast í undankeppni EM 2010. Arnór meiddist á læri á æfingu með landsliðinu á mánudaginn en hann er einnig meiddur á hné. Svo gæti farið að hann fari í dag í speglunaraðgerð á hnénu. „Það gæti verið að ég fari í speglun á hnénu en þetta er bara læknisskoðun," sagði Arnór í samtali við Fréttablaðið í gær. „Ég verð frá í 2-3 vikur vegna meiðslanna á lærinu og því gæti hentað að framkvæma speglunaraðgerðina nú." Arnór hefur lengi átt í vandræðum með hnéð. „Ég fékk bólgueyðandi sprautu fyrir þremur vikum en samt var það bólgið þegar ég kom hingað vegna landsliðsins. Það þýðir einfaldega að það er eitthvað að." Hann segir ekkert óeðlilegt hafa komið í ljós í myndatökum á hnénu. Í raun sé þetta keimlíkt þeim vandræðum sem Einar Hólmgeirsson á nú í og lýsti í viðtali við Fréttablaðið sem birtist í gær. „Ég las þetta viðtal og það hefði þess vegna getað verið tekið við mig. Þetta virðist vera nákvæmlega sama vandamálið og hjá mér." Arnór leikur með FCK í Danmörku og liðið er nú í öðru sæti deildarinnar og stendur því vel að vígi fyrir úrslitakeppnina sem er framundan. Hann segist þó ekki ætla að fórna sér í leiki í úrslitakeppninni ef hann er ekki heill heilsu. „Heilsan verður að taka forgang og ég ætla ekki að spila nema að hnéð verði búið að jafna sig."
Handbolti Mest lesið Mick Schumacher gaf sjaldgæfa innsýn inn í líf föður síns Formúla 1 Miklu fleiri bakteríur í ræktinni en á klósettsetunni Sport Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Enski boltinn Í beinni: Man. Utd - Leicester | Síðasti leikur fyrir komu Amorims Enski boltinn Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Íslenski boltinn Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford Enski boltinn Sonur Scottie Pippen kom sér og föður sínum í sögubækurnar Sport Gleymdi að kjósa Vinicius Junior Fótbolti Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Íslenski boltinn Fleiri fréttir Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sigurjón hættur með Gróttu Þrjár breytingar á landsliðshópnum | Aron ekki með Mæta Svíum í tveimur leikjum fyrir HM Sjá meira
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti