Logi Ólafsson: Þeirra plan gekk upp í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. september 2009 22:00 Logi Ólafsson, þjálfari KR. Mynd/Pjetur „
Það eru alltaf vonbrigði að tapa leikjum og sérstaklega þegar þeir eru svona þýðingarmiklir eins og þessi," sagði Logi Ólafsson, þjálfari KR eftir 0-1 tap á móti Fram í undanúrslitaleik VISA-bikars karla í dag. „Við vorum ekki nógu vandvirkir í sóknarleiknum og sköpuðum okkur nógu mikið af færum og því fór sem fór. Við gerðumst síðan of ákafir fram á við í aðdraganda marks þeirra þar sem við missum boltann illa," sagði Logi. „Það voru kannski mistök af okkar hálfu að vera allir inn á síðasta þriðjungi vallarins hjá þeim og ná ekki að skapa nein marktækifæri. Það hefði kannski verið heillavænlegra að vera þolinmóðir, bíða, halda boltanum og reyna að lokka þá framar á völlinn. Það gerðum við ekki og það var okkar klaufaskapur," sagði Logi. „Þetta handrit hefur verið skrifað áður að knattspyrnuleik og við höfum margoft séð þetta að lið liggi í vörn og freisti þess að fá skyndisóknir. Það gerðu þeir í dag, það var þeirra upplegg og það skóp sigurinn hjá þeim," sagði Logi. „Við erum ekki ánægðir með að hafa ekki búið til fleiri færi og unnið leikinn. Framarar börðust fyrir sínu og þeirra plan gekk upp í dag," sagði Logi að lokum.
Íslenski boltinn Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Breiðablik - Víkingur | Heimakonur skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Bónorð strax eftir leik í Garðabæ „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Uppgjörið: Stjarnan-Þór/KA 3-2 | Stjörnukonur aftur á sigurbraut Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni „Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Magnaður Sveinn Margeir: „Við eigum fullt inni“ Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Sjá meira