Fótbolti

Ítalski boltinn: Gilardino sá um Roma

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alberto Gilardino skoraði tvö mörk gegn Roma í kvöld.
Alberto Gilardino skoraði tvö mörk gegn Roma í kvöld. Nordic Photos/Getty Images

Tveir leikir fóru fram í ítalska boltanum í dag. Fiorentina kjöldró Roma, 4-1, og Udinese vann góðan útisigur á Chievo, 1-2.

Alberto Gilardino fór mikinn i liði Fiorentina í kvöld og skoraði tvö mörk. Hin mörkin skoruðu Juan Vargas og Massimo Gobbi. Julio Baptista skoraði eina mark Rómverja fjórum mínútum fyrir leikslok.

Gaetano D´Agostino skoraði bæði mörk Udinese í sigrinum á Chievo. Sergio Pellissier skoraði marka heimamanna.

Fiorentina í fimmta sæti, þrem stigum á undan Roma sem er í sjötta sæti deildarinnar.

Udinese er í tíunda sæti og Chievo í því sextánda.

Inter á titilinn næsta vísan. Er tíu stigum á undan AC Milan í efsta sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×