Fótbolti

Ronaldinho í þriggja leikja bann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ronaldinho í leik með AC Milan.
Ronaldinho í leik með AC Milan. Nordic Photos / AFP

Ronaldinho, leikmaður AC Milan, hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann í ítölsku bikarkeppninni fyrir óíþróttamannslega framkomu.

Atvikið átti sér stað í leik AC Milan gegn Lazio í 16-liða úrslitunum í síðasta mánuði. Myndbandsupptökur sýndu að Robinho gaf varnarmanni Lazio, David Rozehnal, olnbogaskot en dómarinn tók ekki eftir því.

AC Milan tapaði leiknum og er úr leik í keppninni og því verður Ronaldinho að taka út bannið á næstu leiktíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×