Úrslitin komu Hiddink á óvart Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. apríl 2009 22:58 Guus Hiddink, stjóri Chelsea. Nordic Photos / Getty Images
Guus Hiddink sagði að sigur sinna manna í Chelsea á Liverpool í Meistaradeild Evrópu í kvöld hafi verið sanngjarn en úrslitin hafi komið sér á óvart. Chelsea vann 3-1 sigur með tveimur mörkum frá Branislav Ivanovic og einu frá Didier Drogba. „Sannleikurinn er sá að það er erfitt að spila á heimavelli Liverpool eins og mörg lið hafa sannað. Ég viðurkenni að úrslitin voru óvænt en við erum afar ánægðir með sigurinn og hann var verðskuldaður," sagði Hiddink. Fernando Torres kom Liverpool yfir strax á sjöttu mínútu leiksins. „Við byrjuðum mjög illa. Varnarleikurinn var ekki eins góður og hann hefði getað verið." „Við leyfðum þeim að skora þetta mark nokkuð auðveldlega en ég verð að hæla mínum leikmönnum fyrir baráttu þeirra eftir það. Við fengum tvö góð tækifæri til að jafna leikinn." „En við brugðumst hárrétt við og skoruðum gott mark úr föstu leikatriði. Eftir það jókst sjálfstraust leikmanna mikið." Hann var ánægður með frammistöðu Ivanovic í kvöld. „Það getur verið erfitt að vera hjá félagi eins og Chelsea þar sem leikmenn fá oft fá tækifæri í byrjunarliðinu. En hann hefur verið mjög ákveðinn á æfingum og sýnt mikinn andlegan styrk."
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Sjá meira