Förum upp með svona stuðningi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. apríl 2009 22:26 Hilmar er hér lengst til hægri á myndinni. Mynd/Stefán
Hilmar Stefánsson, fyrirliði Aftureldingar, var vitanlega hæstánægður með sigur sinna manna á Stjörnunni í kvöld. Afturelding vann tíu marka sigur á Stjörnunni, 32-22, í Mosfellsbæ þar sem stuðningsmenn heimaliðsins lét vel í sér heyra allan tímann. „Mér leið eins og ég væri kominn tíu ár aftur í tímann," sagði Hilmar í léttum dúr og átti þar við stemninguna sem ríkti í íþróttahúsinu að Varmá þegar Afturelding var upp á sitt allra besta. „Nú förum við bara upp og þá fáum við svona stuðning á hverjum heimaleik," bætti hann við. Afturelding varð í þriðja sæti 1. deildar karla á nýliðinni leiktíð og lagði Selfoss, sem varð í öðru sæti deildarinnar, í undanúrslitum umspilskeppninnar. Stjarnan er eina liðið úr efstu deild í umspilinu og lagði ÍR í sinni undanúrslitaviðureign. Stjarnan vann fyrstu viðureign liðanna í úrslitum og mætast þau því í hreinum úrslitaleik um hvort liðið leikur í efstu deild karla á næstu ári. Oddaleikurinn fer fram í Garðabænum á mánudagskvöldið. „Þetta hefur verið misjafnt hjá okkur í vetur en við erum að toppa á réttum tíma," sagði Hilmar. „Við vorum kaldir á móti þeim í upphafi en nú þekkjum við þá betur." Skyttan Attila Valaczkai meiddist í upphafi síðari hálfleiks og kom ekkert meira við sögu. Hilmar hefur þó ekki áhyggjur af því þótt hann yrði ekki með í oddaleiknum. „Það kemur maður í manns stað. Þar fyrir utan er pressan öll á þeim. Þeir eru upp við vegg og hafa öllu að tapa - við engu. Við ætlum okkur samt upp og teljum okkur eiga erindi þangað."
Olís-deild karla Mest lesið Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira