Fyrstu bikarmeistarnir í 20 ár til að detta út í vítakeppni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júní 2010 14:00 Guðmundur Kristjánsson í leiknum í gær. Mynd/Valli
Titilvörn bikarmeistara Breiðabliks endaði strax í fyrsta leik í gær þegar liðið tapaði í vítakeppni á móti Íslandsmeisturum FH á heimavelli sínum í Kópavogi. Þetta er í fimmta sinn á síðustu sjö árum þar sem bikarmeistararnir komast ekki í átta liða liða úrslitin. Blikar urðu jafnframt fyrstu bikarmeistararnir í tvo áratugi til að detta út úr bikarkeppni í vítakeppni. Blikar bættust í hóp með Framliðinu frá 1990 sem datt út fyrir Val í vítakeppni í 16 liða úrslitum og voru fyrir leikinn í gær einu bikarmeistararnir sem hafa tapað í vítakeppni í titilvörn. Líkt og Fram fyrir 20 árum þá komust Blikar yfir í leiknum í gær en Framliðið komst bæði í 2-0 og 3-2 á móti Val í umræddum leik 6. júlí 1990. Í vítakeppninni skoruðu Valsmenn hinsvegar úr öllum vítum síðan á meðan tvær spyrnur Fram klikkuðu. Í vítakeppninni í gær klikkuðu FH-ingar á fyrstu tveimur spyrnum sínum en markvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson tryggði FH sæti í 16 liða úrslitum með því að verja þrjár síðustu vítaspyrnur Blika. Bikarmeistarar höfðu unnið fjórar vítakeppnir í röð frá umræddum leik sumarið 1990 en lið ÍA (2001), KR (1995) og Valur (2 sinnum 1991) höfðu öll unnið vítakeppnir í titilvörn sinni. Bikarmeistarum hefur ekki tekið að verja titil sinn undanfarin sjö ár eða síðan að Fylkir vann bikarinn 2001 og 2003. Síðan þá hafa bikarmeistararnir dottið út tvisvar í 32 liða úrslitum, þrisvar í 16 liða úrslitum, tvisvar í 8 liða úrslitum og einu sinni í undanúrslitum en KR-ingar voru einum leik frá því að komast í bikarúrslitaleikinn í titilvörn sinni í fyrra.
Íslenski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kveðja Kristinn og Kristinn Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“