Chelsea í góðum málum í Meistaradeildinni eftir sigur í Moskvu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. október 2010 18:12 Yuri Zhirkov sést hér skora markið sitt í dag. Mynd/Nordic Photos/Getty
Chelsea er áfram með fullt hús í Meistaradeildinni eftir 2-0 sigur á rússneska liðinu Spartak Moskvu í Moskvu í uppgjöri toppliðanna í F-riðli í dag. Bæði lið höfðu unnið tvo fyrstu leiki sína í keppninni og hafði Spartak ekki fengið á sig mark fyrir leikinn. Chelsea skoraði bæði mörkin sín í leiknum í fyrri hálfleiknum. Rússinn Yuri Zhirkov valdi vettvanginn til að opna markareikninginn með Chelsea en hann kom liðinu í 1-0 á móti löndum sínum með frábæru skoti á 23. mínútu. Zhirkov var þar með fyrsti Rússinn til að skora hjá rússnesku liði í Meistaradeildinni og fyrsti leikmaður til að skora hjá Spartak Moskvu liðinu í Meistaradeildinni í ár. Nicolas Anelka kom Chelsea í 2-0 tveimur mínútum fyrir hálfleik eftir hafa fengið flotta sendingu inn fyrir vörnina frá Mickael Essien. Anelka var búinn að vera ágengur upp við marka Spartak allan hálfleikinn og hafði fengið algjört dauðafæri þremur mínútum áður. Chelsea fékk færi til að bæta við mörkum í seinni hálfleiknum og sigurinn var aldrei í hættu. Chelsea hefur þar með þriggja stiga forskot á Spartak-liðið á toppi F-riðilsins, státar af markatölunni 8-1 og betri stöðu í innbyrðisleikjum. Það virðist því fátt ætla að koma í veg fyrir sigur enska liðsins í riðlinum.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira