Íslenski boltinn

1. deild: Fyrsti sigur Gróttu

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Kristján Finnbogason, markmaður Gróttu.
Kristján Finnbogason, markmaður Gróttu.
Grótta vann sinn fyrsta sigur í 1. deild karla í knattspyrnu í dag. Gróttan vann þá öruggan og góðan 4-1 sigur á Fjarðabyggð fyrir austan. Grótta komst í 2-0 en Fjarðabyggð minnkaði muninn í 2-1. Grótta skoraði svo tvö mörk undir lokin. Grótta er þar með komið upp fyrir Fjarðabyggð með 4 stig í 8. sæti deildarinnar, en Austfirðingar hafa 3 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×