Reynir: Þeir áttu allir frábæran leik í kvöld Stefán Árni Pálsson skrifar 21. október 2010 22:50 Reynir Þór Reynisson, þjálfari Fram. Mynd/Stefán
Reynir Þór Reynisson, þjálfari Fram, var að vonum mjög ánægður með leik sinna manna í kvöld en Framarar rústuðu Val 40-23 í þriðju umferð N1-deild karla. „Þetta var frábær frammistaða hjá okkur í kvöld. Loksins sá ég samheldni, samstöðu og rétt hugafar hjá strákunum og það skilaði sér í frábærum leik hjá okkur. Hver einasti leikmaður í liðinu átti frábæran leik hér í kvöld," sagði Reynir. „Markmiðið fyrir leik var að vinna sigur hér en þegar við sáum að þeir voru farnir að gefast upp þá var ekkert annað í stöðunni en að gefa í." „Það vill oft gerast þegar lið eru komin með ákveðið forskot að menn falla niður á hælana, gefa eftir og hleypa andstæðingunum aftur inn í leikinn en það gerðist ekki í kvöld og strákarnir kafsigldu þá bara," sagði Reynir. Það einkenndi leik heimamanna í kvöld að liðið var virkilega vel stemmt, leikmenn börðust mikið fyrir hvern annan og leikgleðin skein af andlitum Framara. „Það sem skóp þennan sigur hjá okkur var mikil liðheild, frábær vörn og góð markvarsla. Við vorum í raun hættulegir á öllum sviðum og ég er hrikalega ánægður með strákana," sagði Reynir sérstaklega sáttur eftir leikinn í kvöld.
Olís-deild karla Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Fleiri fréttir Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Sjá meira