Skilanefnd Glitnis stefndi þremur fyrrverandi starfsmönnum Glitnis, Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Pálma Haraldssyni rétt fyrir páska.
Árið 2007 voru ráðandi eigendur Glitnis banka félög sem Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson stýrðu. Höfðu þeir yfirráð yfir amk 40% af útgefnu hlutafé bankans. Lárus Welding, forstjóri bankans, var einnig formaður áhættunefndar. Tveir af þeim starfsmönnum sem stefnt er sátu í áhættunefnd en auk þess útbjó einn starfsmaður lánasamninginn sem er grundvöllur stefnunnar.
Þann 5. maí 2008 funduðu Jón Ásgeir og Lárus ásamt Gunnar Sigurðssyni, forstjóra Baugs Group um möguleg kaup bankans á hlut Pálma í breska fyrirtækinu Aurum en félag hans Fons, átti hlutabréf í félaginu. Eftir fundinn sendi Gunnar tölvupóst til Lárusar og Jóns Ásgeirs þar sem hann lagði til bankinn myndi kaupa hlutabréf í Aurum af Pálma. Kaupverðið væri 6 milljarðar og ætti Pálmi að fá 2,2 milljarða króna í cash. Jón Ásgeir átti að fá helming þess fjár. Aurum var skráð í Bretlandi og átti dótturfélög, m.a. Goldsmith og var iðulega vísað til þess fyrirtækis þegar viðskiptafléttan var rædd. Í bókhaldi Fons var verðmæti félagsins í Aurum 1,4 milljarðar króna þann 1. janúar 2008. Þessi sömu bréf urðu í júlí 2008 - eða hálfu ári síðar, andlag kaupsamnings milli Fons og dótturfélagsins FS38 þar sem kaupverð þeirra var 6 milljarðar króna. Kaupin voru fjármögnuð af bankanum samkvæmt ákvörðun fyrrverandi starfsmanna bankans. Fréttastofa hefur undir höndum tölvupóstsamskipti vegna þessara viðskipta.

22. maí sendir Jón Ásgeir enn fyrirmæli í tölvupósti á Lárus undir fyrirsögninni: „Þetta eru málin sem ég er að bögga ykkur með.... setti þetta skýrt upp the Bonus way svo við getum með einföldum hætti klárað." Í póstinum segir m.a. : „...ef við komum þessum málum frá þá er borðið mitt hreint. Annars er kannski best að ég verði starfandi stjórnarformaður Glitnis."
Lárus áframsendir þennan póst á nokkra starfsmenn bankans með þeim fyrirmælum að taka málið fyrir.
Stuttu síðar sendir Einar Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar bankans, tölvupóst til Lárusar:
„Mér finnst hinn góði eigandi okkar aðeins setja þig í erfiða stöðu með þessum mail. Goldsmith er t.d. virði 1,5 en ekki 4 osfrv."
Ríflega mánuði síðar voru bréfin tilgreind sem 6 milljarða króna virði. Á þessum tíma var Fons í verulegum vanskilum og því var farin sú leið að FS38, dótturfélag Fons, fékk lánið. Í lánabeiðninni kemur fram að lánið, 6 milljarðar, sé ætlað til að fjármagna kaup félagsins á hlutabréfum Fons í Aurum og ætlunin væri að nýta lánið að hluta til að greiða vanskil Fons við bankann. Eiginleg útgreiðsla úr bankanum væru 2 milljarðar, 1 til Jóns Ásgeirs og 1 til Pálma.
Lánabeiðnin var afgreidd utan fundar áhættunefndar bankans af starfsmönnum Glitnis sem nú hefur verið stefnt. Daginn eftir sendir Einar Örn tölvupóst til Lárusar:
„Verð að viðurkenna að ég skil ekki afhverju við lánum ekki bara Pálma 2 milljarða króna til að koma fyrir á Cayman, áður en hann fer á hausinn. Í stað þess að fara í alla þessa Goldsmith æfingu."
16. júlí var gerður lánasamningur milli bankans og FS38 ehf upp á 6 milljarða króna. Á gjalddaga lánsins í júlí 2009 voru engar eignir í FS38 til að mæta greiðslu þess. Fons var tekið til gjaldþrotaskipta 9 mánuðum síðar.