Íslenski boltinn

Hlín: Margt jákvætt í leiknum sem við tökum með okkur út

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlín Gunnlaugsdóttir, fyrirliði Breiðabliks.
Hlín Gunnlaugsdóttir, fyrirliði Breiðabliks.

Breiðablikskonur töpuðu 0-3 á heimavelli í fyrri leik sínum við franska liðið Juvisy Essonne á Kópavogsvellinum í dag. Breiðabliksliðið varðist lengstum vel í leiknum en fékk á sig tvö mörk á síðustu 18 mínútum leiksins.

„Þetta var erfiður leikur því við vorum að spila við hörkulið en mér fannst við eiga fullt erindi í leikinn í fyrri hálfleiknum. Við hefðum getað skorað ef hlutirnir hefðu fallið betur með okkur en við vorum alltof oft rangstæðar og fengum síðan gott skotfæri eftir horn. Þær skora síðan markið úr aukaspyrnu og við áttum annars í fullu tré við þær," sagði Hlín Gunnlaugsdóttir, fyrirliði Breiðabliks eftir leikinn.

„Við vorum að gera það sem þjálfarinn lagði upp með að vera þéttar, berjast og valda hverja aðra. Í seinni hálfleiknum losnaði of mikið á milli öftustu varnarlínunnar og sóknarlínunnar," sagði Hlín.

„Annað markið þeirra kom síðan á leiðinlegum tíma. Við vorum að koma úr færi og þær skora úr skyndisókn með skoti af löngu færi. Það var mjög óheppilegt fyrir okkur en Birna var annars búin að standa sig vel í markinu. Þetta var því svekkjandi," sagði Hlín sem viðurkenndi að það hafði vissulega áhrif á liðið að ganga í gegnum miklar breytingar á síðustu vikum.

„Það eru að koma inn mjög ungar stelpur í liðið og við erum búnar að missa fjóra mjög mikilvæga leikmenn. Það eru tvær bandarískar stelpur, markmaðurinn og einn varnarmaður og svo fóru Sandra Sig og Greta Mjöll út í skóla. Þær eru allar með mikla reynslu og það koma reynsluminni leikmenn inn sem voru að standa sig samt sem áður," sagði Hlín.

Seinni leikurinn fer fram í Frakklandi eftir þrjár vikur og möguleikarnir eru ekki miklir eftir þetta tap.

„Við ætlum að fara þarna út, njóta þess að spila og reyna að hafa gaman. Við stefnum bara á það að vinna þann leik, skora á þær, halda markinu okkar hreinu og halda uppi stoltinu. Það var margt jákvætt í leiknum sem við tökum með okkur út," sagði Hlín að lokum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×