Ronaldo gæti misst af Lyon-leiknum - frá í 10 til 15 daga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2011 16:00 Cristiano Ronaldo bað um skipting strax eftir að hann skoraði þriðja mark sitt í gær. Mynd/AP
Það voru skin og skúrir hjá Cristiano Ronaldo í 7-0 sigri Real Madrid á Malaga í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Ronaldo skoraði þrennu í leiknum en varð síðan að fara meiddur af velli. Ronaldo meiddist aftan í læri um leið og hann skoraði þriðja markið og eftir myndatöku í dag varð ljóst að hann verður frá keppni í tíu til fimmtán daga. Þetta þýðir að það er ekki öruggt að hann geti verið með í seinni leiknum á móti franska liðinu Lyon í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leiknum í Frakklandi en seinni leikurinn fer fram 16. mars eða eftir tólf daga. „Ég meiddist þegar ég skoraði þriðja markið og þetta lítur ekkert illa út. Ég vona að ég geti verið með í næsta leik," sagði Ronaldo á twitter-síðunni sinni í gærkvöldi en þessi skilaboð hans til stuðningsmanna sinna voru seinna tekin út þegar ljóst var að meiðslin voru alvarlegri en í fyrstu var talið.Cristiano Ronaldo á ferðinni í leiknum í gær.Mynd/APRonaldo verður í það minnsta ekki með á móti Racing Santander á sunnudaginn en Real Madrid er nú sjö stigum á eftir Barcelona og hefur alls ekki efni á því að misstíga sig í fleiri leikjum. Fjarvera Ronaldo ætti líka að gefa Lionel Messi tækifæri til að auka forskotið í baráttunni um markakóngstitilinn en þeir eru nú jafnir með 27 mörk.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira