Fram og HK unnu sigra Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. mars 2011 21:05 Magnús Stefánsson, leikmaður Fram.
Spennan um síðustu sætin í úrslitakeppni N1-deildar karla verður áfram mikil eftir úrslit kvöldsins. Fram vann góðan sigur á botnliði Selfoss, 35-31, eftir að hafa verið með fimm marka forystu í hálfleik, 20-15. Fram hafði tapað síðustu fjórum leikjum sínum og var sigurinn í kvöld því kærkominn. Selfyssingar bitu þó frá sér í seinni hálfleik og náðu að jafna metin, 29-29, þegar sjö mínútur voru til leiksloka. Framarar reyndust þó sterkari á lokasprettinum. Þá vann HK öruggan sigur á Aftureldingu, 37-27. Haukar gerðu jafntefli á Akureyri fyrr í kvöld en þeir eru ásamt Fram og HK í mikilli baráttu um 3. og 4. sæti deildarinnar. Fram er nú með 21 stig þriðja sætinu en Haukar og HK koma næst með 20 stig. Valsmenn eru nánast búnir að missa af lestinni í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni en þeir töpuðu fyrir FH í kvöld og eru með fjórtán stig í sjötta sætinu. Selfoss er með sjö stig á botninum og stigi á eftir Aftureldingu sem eru í næstneðsta sæti.Fram - Selfoss 35-31 (20-15)Mörk Fram: Jóhann G. Einarsson 7, Andri Berg Haraldsson 6, Halldór J. Sigfússon 6, Haraldur Þorvarðarson 6, Einar Rafn Eiðsson 4, Stefán B. Stefánson 4, Magnús Stefánsson 2.Mörk Selfoss: Ragnar Jóhannsson 10, Andrius Zegelis 6, Guðjón F. Drengsson 5, Einar Héðinsson 3, Atli Kristinsson 2, Guðni Ingvarsson 2, Milna Ivancev 1, Ómar Helgason 1, Helgi Héðinsson 1.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Fyrrverandi þjálfari Liverpool látinn Enski boltinn „Hugmyndin var að verjast með fimm menn“ Enski boltinn Amorim lifir þökk sé rauða spjaldi Sánchez Enski boltinn Sjáðu Berglindi Björgu verða markahæsta ásamt öllum hinum mörkum dagsins Íslenski boltinn Topplið Juventus missteig sig Fótbolti Logi Geirsson ætlar alla leið í MMA: „Hann peppar mig áfram“ Sport „Auðvelt að gleðja stuðningsfólk okkar“ Enski boltinn „Menn hafa gefið sig 110 prósent í verkefnið“ Íslenski boltinn Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Fleiri fréttir Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Sjá meira