Real Madrid vill að UEFA dæmi sex Barcelona-menn í bann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. maí 2011 09:45 Dani Alves var borinn útaf á börum eftir tæklingu Pepe. Mynd/AP
Forráðamenn Real Madrid heimta að UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu, refsi Pep Guardiola, þjálfara Barcelona og leikmanninum Dani Alves fyrir óíþróttamannslega framkomu í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Þeir eru samt ekki þeir einu sem Real-menn ásaka um óíþróttamannslega hegðun. Real Madrid ætlar ekki að gefa neitt eftir í þessu "stríði" spænsku risanna því þeir vilja að Sergio Busquets, Dani Alves og Pedro fái tveggja leikja bann og þeir Seydou Keita, Víctor Valdés og Javier Mascherano fái eins leiks bann. Það gekk mikið á þessum leik sem lauk með 2-0 sigri Barcelona en leikmenn Barcelona stunduðu það að gera mikið úr hverri einustu tæklingu í leiknum. Pepe fékk rautt spjald fyrir brot á Dani Alves sem var borinn útaf "stórslasaður". Myndir af atvikinu sýndu hinsvegar að Pepe kom ekki við Alves sem var fljótur inn á völlinn aftur og bar þess engin merki að hafa legið sárþjáður í grasinu aðeins nokkrum sekúndum áður. Real Madrid hefur einnig tilkynnt það að aðstoðarþjálfarinn Aitor Karanka munu tala fyrir hönd liðsins í aðdraganda seinni leiksins í Barcelona á morgun en það mun hinsvegar ekki heyrast neitt frá aðalþjálfaranum Jose Mourinho. UEFA kærði Jose Mourinho fyrir ummæli sína eftir fyrri leikinn þar sem hann talaði meðal annars um að Barcelona fengi alltaf hjálp í Meistaradeildinni og Guardiola gæti varla notið þess að vinna alltaf á "svindli".
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira