Evra: Ég má bara ekki tapa öðrum úrslitaleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. maí 2011 10:45 Patrice Evra. Mynd/Nordic Photos/Getty
Patrice Evra hefur kynnst því bæði að vinna og tapa úrslitaleik í Meistaradeildinni. Hann vann titilinn með Manchester United 2008 en þurfti að sætta sig við silfrið með bæði Mónakó-liðinu árið 2004 og með United fyrir tveimur árum. Evra spilar því sinn fjórða úrslitaleik á Wembley á morgun þegar Manchester United mætir Barcelona. „Ég má bara ekki tapa öðrum úrslitaleik. Ef ég hef spilað fjóra úrslitaleiki og aðeins unnið einn þá yrði það erfitt fyrir mig að halda áfram að spila í Meistaradeildinni. Kannski myndi ég biðja stjórann um að nota mig ekki aftur í Evrópukeppninni," sagði Evra væntanlega meira í gríni en alvöru í viðtali við Sky Sports. „Ég verð að vinna þennan og það er mikilvægt að halda Manchester United á toppnum í heimsfótboltanum," sagði hinn þrítugi franski bakvörður sem hefur unnið níu stóra titla með United þar af varð hann ensku meistari í fjórða sinn á dögunum. „Meistaradeildabikarinn er sá stærsti og allir í heiminum vilja vinna hann en það er vissulega mikilvægt að vinna ensku deildina. Það mjög erfitt að verða enskur meistari og ég er mjög stoltur að hafa unnið enska titilinn fjórum sinnum. Það er bara allt annað að vinna Meistaradeildina," sagði Evra. „Það fylgja töfrar kvöldi úrslitaleiksins í Meistaradeildinni og ég man enn eftir tilfinningunni þegar við unnum. Það fylgir því hinsvegar mjög slæm tilfinning að tapa og ég ætla ekki að láta það koma fyrir aftur," sagði Evra.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira