Barcelona flýgur til London í kvöld út af eldgosinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. maí 2011 12:15 Leikmenn FC Barcelona á æfingu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Barcelona-liðið mun fljúga til London í kvöld vegna úrslitaleiks Meistaradeildarinnar á laugardaginn. Þetta er tveimur dögum fyrr en áætlað var en ástæðan er að Barcelona-menn eru að reyna að forðast öskuskýið sem er á leiðinni yfir Bretland frá eldgosinu í Grímsvötnum. Flug Barcelona-liðsins er klukkan tíu í kvöld en Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, hafði talað um það strax í gær að liðið væri að velta fyrir sér að breyta ferðaáætlunum sínum vegna hættunnar á því að flugvöllum í London yrði lokað á fimmtudaginn. UEFA mun ekki fresta leiknum hvernig sem ástandið verður en það er hætt við því að stuðningsmenn Barcelona gætu lent í vandræðum með að komast til Lundúna verði öskuskýsspáin óhagstæð í lok vikunnar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem eldgos á Íslandi hefur áhrif á ferðalög Barcelona fyrir leiki í Meistaradeildinni. Í fyrra varð liðið að ferðast í rútu til Mílanó fyrir fyrri undanúrslitaleik sinn á móti Inter vegna eldgosins í Eyjafjallajökli. Barcelona tapaði leiknum 1-3 og varð síðan að sætta sig við að falla úr leik. Guardiola er því brenndur af vandræðunum í fyrra.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira