Fimm ökumenn í þéttum hóp, en Hamilton enn sneggstur 29. júlí 2011 13:45 Lewis Hamilton á mótssvæðinu í Ungverjalandi ver eyrun fyrir hávaðanum á staðnum. AP mynd: Thanassis Stavrakis
Hamilton endurtók leikinn frá fyrri æfingunni á seinni æfingu Formúlu 1 liða í Ungverjalandi í dag. Hann náði besta tíma á McLaren rétt eins og á fyrri æfingunni í morgun. Fernando Alonso varð í öðru sæti á Ferrari og var 0.241 úr sekúndu á eftir Hamilton. Jenson Button á McLaren náði þriðja besta tíma, en Mark Webber og Sebastian Vettel á Red Bull komu í kjölfarið. Munaði 0.531 úr sekúndu á Hamilton og Vettel. Keppendur óku á tveimur útgáfum af mjúkum dekkjum frá Pirelli á æfingunni, en þau eru nauðsynleg til að ná gripi á braut sem oft er rykug, sérstaklega á föstudeginum á mótshelginni. Mark Webber vann keppnina í Ungverjalandi í fyrr á Red Bull. Sýnt verður frá æfingum Formúlu 1 keppnisliða kl. 20.30 á Stöð 2 Sport í kvöld Tímarnir frá autosport.com 1. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m21.018s 29 2. Fernando Alonso Ferrari 1m21.259s + 0.241 40 3. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m21.322s + 0.304 34 4. Mark Webber Red Bull-Renault 1m21.508s + 0.490 35 5. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m21.549s + 0.531 31 6. Felipe Massa Ferrari 1m22.099s + 1.081 40 7. Nico Rosberg Mercedes 1m22.121s + 1.103 36 8. Michael Schumacher Mercedes 1m22.440s + 1.422 36 9. Paul di Resta Force India-Mercedes 1m22.835s + 1.817 40 10. Adrian Sutil Force India-Mercedes 1m22.981s + 1.963 37 11. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari 1m23.030s + 2.012 34 12. Sergio Perez Sauber-Ferrari 1m23.399s + 2.381 37 13. Rubens Barrichello Williams-Cosworth 1m23.679s + 2.661 34 14. Nick Heidfeld Renault 1m23.861s + 2.843 28 15. Pastor Maldonado Williams-Cosworth 1m24.181s + 3.163 39 16. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1m24.182s + 3.164 26 17. Vitaly Petrov Renault 1m24.546s + 3.528 21 18. Sebastien Buemi Toro Rosso-Ferrari 1m24.878s + 3.860 35 19. Jarno Trulli Lotus-Renault 1m24.994s + 3.976 38 20. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m25.447s + 4.429 39 21. Timo Glock Virgin-Cosworth 1m26.823s + 5.805 33 22. Jerome D'Ambrosio Virgin-Cosworth 1m27.261s + 6.243 28 23. Daniel Ricciardo HRT-Cosworth 1m27.730s + 6.712 31 24. Tonio Liuzzi HRT-Cosworth 1m28.255s + 7.237 25
Formúla Íþróttir Mest lesið Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti Danmörk - Þýskaland | Alfreð ætlar að stöðva heimsmeistarana Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Handbolti Sér í gegnum Dag: „Hann er bara að segja þetta til að spila með Íslendinga“ Handbolti Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira