Lögmaður Breivik: Þetta er ekki spurning um sýknu eða sakfellingu 29. júlí 2011 13:00 Geir Lippestad þurfti að hugsa sig vel um og ráðfæra sig við fjölskyldu sína áður en hann tók það að sér að verja Breivik. Mynd/afp
Geir Lippestad, verjandi Anders Behring Breivik, segir í viðtali við norska miðilinn Verdens Gang að það hefði ekki verið auðvelt að taka ákvörðunina um að verja hryðjuverkamanninn, sem varð valdur að dauða 76 manns þann 22. júlí síðastliðinn. „Þetta er of ofbeldisfullt. Þetta er of erfitt. Það voru mín fyrstu viðbrögð." sagði Lippestad um hugsanir sínar þegar honum var tilkynnt að Breivik hafi óskað eftir lögfræðiaðstoð hans. Hann segist næst hafa rætt málin við eiginkonu sína, fjölskyldu og samstarfsmenn áður en hann fór í göngutúr og komst að þeirri niðurstöðu að það væri mikilvægt í starfandi demókratísku réttarríki, að gæta að rétti manna til réttlátrar málsmeðferðar. Hann afréð því að lokum rétt væri að taka málið að sér. „Þetta er ekki spurning um það hvort hann verði sýknaður eða ekki. Spurningin snýst um það hvort hann verði dæmdur til fangelsisvistar eða til meðferðar á geðsjúkrahúsi, þar sem hann yrði jafnframt lokaður inni." Í dag er liðin vika frá atburðunum í Noregi, sem kostuðu 76 manns lífið.
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Innlent Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Innlent „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Innlent Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Innlent Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða Innlent Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann Innlent Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG Erlent Fræsa og malbika Vesturlandsveg í kvöld Innlent Fleiri fréttir Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG SAS fellir niður allt flug til Grænlands Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Sjá meira