Vettel fremstur á ráslínu í tólfta skipti á árinu 8. október 2011 07:34 Sebastian Vettel í tímatökunni á Suzuka brautinni í nótt, þar sem hann náði besta tíma. AP MYND: GREG BAKER
Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Suzuka brautinni í Japan í nótt. Hann varð aðeins 0.009 úr sekúndu á undan Jenson Button á McLaren, en Lewis Hamilton á McLaren var þriðji fljótastur og Felipe Massa á Ferrari á eftir honum. Hamilton var með besta tíma í fyrri tilraun nokkurra ökumanna til að ná besta tíma í þriðju umferð tímatökunnar, sem er jafnframt lokaumferðin. Nokkrir keppinauta Hamilton gerðu eftir þetta tilraun til að ná betri tíma en Hamilton og fóru annan tímatökuhring eftir lítisháttar undirbúning og Vettel og Button tókst að bæta tíma hans. En Hamilton náði ekki að bæta tíma sinn. Í frétt á autosport.com segir að Hamilton hafi farið heldur of seint af stað í aðra tilraun sína í lokaumferðinni og auk þess hafi hann tafist fyrir aftan Mark Webber á Red Bull og Michael Schumacher á Mercedes, þegar hann var leið á svæðið þar sem tímatakan hefst. Náði Hamilton ekki þangað í tæka tíð og missti því af tækifæri til að bæta tíma sinn, sem Schumacher gerði reyndar líka. Tími Schumacher í annarri umferð tímatökunnar gildir því hvað uppröðun á ráslínu varðar og sama má segja um Bruno Senna á Renault, Vitaly Petrov á Renault og Kamui Kobayashi á Sauber. Vettel getur tryggt sér heimsmeistaratitil ökumanna í mótinu á Suzuka brautinni, ef hann nær í eitt stig, en aðeins Button á McLaren getur skákað honum. Button þarf að vinna fimm síðustu mót ársins til að geta unnið titilinn, en á sama tíma má Vettel ekki fá stig, eigi það að ganga eftir. Ef Button vinnur ekki mótið á Suzuka brautinni verður Vettel meistari og þarf ekki fleiri stig í næstu mótum. Tímarnir í dag 1. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m30.466s 2. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m30.475s + 0.009 3. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m30.617s + 0.151 4. Felipe Massa Ferrari 1m30.804s + 0.338 5. Fernando Alonso Ferrari 1m30.886s + 0.420 6. Mark Webber Red Bull-Renault 1m31.156s + 0.690 7. Michael Schumacher Mercedes engin tími í lokaumferðinni 8. Bruno Senna Renault engin tími í lokaumferðinni 9. Vitaly Petrov Renault engin tími í lokaumferðinni 10. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari engin tími í lokaumferðinni 11. Adrian Sutil Force India-Mercedes 1m32.463s + 1.997 12. Paul di Resta Force India-Mercedes 1m32.746s + 2.280 13. Rubens Barrichello Williams-Cosworth 1m33.079s + 2.613 14. Pastor Maldonado Williams-Cosworth 1m33.224s + 2.758 15. Sebastien Buemi Toro Rosso-Ferrari 1m33.227s + 2.761 16. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1m33.427s + 2.961 17. Sergio Perez Sauber-Ferrari engin tími í annarri umferð 18. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m35.454s + 2.828 19. Jarno Trulli Lotus-Renault 1m35.514s + 2.888 20. Jerome D'Ambrosio Virgin-Cosworth 1m36.439s + 3.813 21. Timo Glock Virgin-Cosworth 1m36.507s + 3.881 22. Daniel Ricciardo HRT-Cosworth 1m37.846s + 5.220 23. Nico Rosberg Mercedes engin tími í fyrstu umferð 24. Tonio Liuzzi HRT-Cosworth engin tími í fyrstu umferð
Formúla Íþróttir Mest lesið Þegar Dagur féll á lyfjaprófi: „Var með magasár í hálft ár“ Handbolti „Eftir síðasta mót sögðu þeir bara strax að þeir vildu fá Ísland“ Handbolti Solskjær ekki lengur líklegastur Enski boltinn Bruno Fernandes hakkaður í gærkvöldi Enski boltinn Mætir Liverpool en fær gæsahúð þegar hann heyrir „You'll Never Walk Alone“ Enski boltinn Guðjón Valur fær Garðar til Gummersbach Handbolti Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Íslenski boltinn „Mjög hentugt að fá viku til að koma honum inn í hlutina“ Körfubolti Mikel Arteta hrósaði Arne Slot Enski boltinn Magnaður McTominay til bjargar eftir að Conte brjálaðist Fótbolti Fleiri fréttir F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Telur samstarf Hamilton og Ferrari nálgast þolmörk Portúgal í stað Hollands í Formúlu 1 Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Stórar breytingar og tímamót hjá Red Bull Heimsmeistarinn vill gleyma því að hann keyri í Formúlu 1 Sjáðu hamaganginn þegar Norris varð heimsmeistari í fyrsta sinn Klökkur Norris: „Ég er ekki að gráta“ Lando Norris er Formúlu 1 heimsmeistari í fyrsta sinn Svona verða Norris, Verstappen eða Piastri heimsmeistarar í dag Verstappen á ráspól og allt opið í lokakeppninni McLaren ætlar að nota heilbrigða skynsemi í ákvörðunum sínum Verstappen fær nýjan liðsfélaga Hótað lífláti eftir mistökin Reiður eftir ásakanir um svindl: „Hversu heilalaus þarftu að vera?“ Sjá meira