Berbatov með einkastuðningshóp í stúkunni í Rúmeníu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. október 2011 11:30 Dimitar Berbatov fó með til Rúmeníu en fékk ekkert að spila. Mynd/Nordic Photos/Getty
Búlgarinn Dimitar Berbatov fékk sérstakar móttökur í Rúmeníu þrátt fyrir að hafa ekkert fengið að koma við sögu í 2-0 sigri Manchester United á Otelul Galati í Meistaradeildinni. Meira en hundrað Búlgarir voru mættir til Búkarest til að reyna að sannfæra Berbatov um að gefa aftur kost á sér í búlgarska landsliðið sem er ekki að gera alltof góða hluti þessa dagana. „Ég bjóst ekki við svona móttökum en ég get ekki spilað með landsliðinu ef ég fæ ekkert að spila með félagsliðinu," sagði Dimitar Berbatov augljóslega pirraður yfir takmörkuðum tækifærum hjá Sir Alex Ferguson, stjóra Manchester United. Berbatov hætti í búlgarska landsliðinu í maí en hann hefur skorað 48 mörk í 79 landsleikjum. „Ég vil þakka þessu góða fólki fyrir stuðninginn sem var mjög ánægjulegur. Liðsfélagarnir mínir hjá United vissu ekkert hvað var í gangi þannig að ég þurfti aðeins að útskýra þetta fyrir þeim," sagði Berbatov. Berbatov er dottinn fyrir aftan Javier Hernandez og Danny Welbeck í goggunarröðinni á Old Trafford og hefur aðeins fengið að spreyta sig í samtals 116 mínútur í deild og Meistaradeild á þessu tímabili.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira