Einar Jónsson: Við eigum mikið inni Elvar Geir Magnússon skrifar 13. október 2011 22:17 Einar Jónsson, þjálfari Fram. Mynd/Anton „
Við erum með 100% árangur það sem af er og að mínu mati erum við nokkuð á áætlun. Ég er ánægður með það. Þetta er eitthvað sem ekki allir áttu von á fyrir mót,“ segir Einar Jónsson, þjálfari Fram. Safamýrarliðið er með fullt hús stiga en það vann eins marks sigur á Val í kvöld. Lengi var útlit fyrir nokkuð þægilegan sigur Framara en Valsmenn veittu þeim mikla keppni í lokin. „Við erum ryðgaðir sóknarlega. Þetta hefur verið svona í nánast öllum leikjunum og er eitthvað sem við verðum að skoða. Síðustu 10-15 mínúturnar erum við ekki nægilega góðir. Ég held að þetta sé ekki úthaldið því við erum að „rótera“ vel. Þetta er eitthvað sem við þurfum kannski að laga í hausnum á okkur,“ segir Einar. Þrátt fyrir að margir hafi hrifist af spilamennsku Fram í upphafi móts telur Einar liðið ekki hafa spilað eins og það getur best. „Við eigum mikið inni. Við þurfum að slípa sóknarleikinn en við erum með góða einstaklinga og gott lið. Við þurfum að spila aðeins betur saman sem lið. Varnarlega erum við í flottum málum,“ segir Einar.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Fyrrverandi þjálfari Liverpool látinn Enski boltinn „Hugmyndin var að verjast með fimm menn“ Enski boltinn Amorim lifir þökk sé rauða spjaldi Sánchez Enski boltinn Sjáðu Berglindi Björgu verða markahæsta ásamt öllum hinum mörkum dagsins Íslenski boltinn Topplið Juventus missteig sig Fótbolti Logi Geirsson ætlar alla leið í MMA: „Hann peppar mig áfram“ Sport „Auðvelt að gleðja stuðningsfólk okkar“ Enski boltinn Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport „Menn hafa gefið sig 110 prósent í verkefnið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Sjá meira