Charles Pic ekur með Marussia liðinu 2012 28. nóvember 2011 17:30 Charles Pic verður nýliði í Formúlu 1 á næsta keppnistímabili. MYND: Marussia Virgin
Marussia Virgin Formúlu 1 liðið hefur samið við Charles Pic frá Frakklandi um að aka með liðunu 2012 ári, en Timo Glock hefur þegar gert samning um að keppa áfram með liðinu á næsta ári. Marussia Virgin hefur fengið leyfi FIA til að breyta nafni liðsins fyrir næsta tímabil og bílar liðsins munu heita Marussia á næsta ári, í stað Virgin. Liðið er að hluta til í eigu rússneska sportbílaframleiðandans Marussia. Pic er 21 árs gamall og varði tveimur dögum á æfingum með Marussia Virgin liðinu í síðustu viku. Hann keyrði Formúlu 1 bíl í fyrsta skipti á fyrstu æfingunni og þótti skila sínu hlutverki vel á æfingunum. Pic keppti í GP2 mótaröðinni í ár og varð í fjórða sæti í stigamóti ökumanna. Hann vann tvo sigra á árinu og var fjórum sinnum fljótastur í tímatöku. Pic mun á næstu vikum kynnast starfsemi Marussia Virgin í tæknimiðstöð liðsins í Bretlandi. Pic segist ætla að leggja hart að sér til að undirbúa sig fyrir næsta keppnistímabilið á næsta ári. „Ég er mjög ánægður að taka skref upp í Formúlu 1 með Marussia Virgin. Sem ökumaður er maður alltaf tilbúinn að grípa tækifæri, en æfingin í Abú Dabí í síðustu viku var erfið prufa," sagði Pic. „Ég fékk tækfifæri til að læra nýja hluti, en vissi líka að ég þyrfti að vekja hrifningu liðsins og sýna þeim að ég gæti skilað góðri vinnu. Ég var ánægður með frammistöðu mína og liðið augljóslega líka, en þetta er bara byrjunin og ég veit að það er mikil vinna framundan hjá mér til að réttlæta þetta tækifæri." „Mér líkar mjög vel við liðið og við unnum vel saman á æfingunum og mér leið vel. Þeir vilja gera hllutina rétt og ég sé að það er metnaður til að til að ná árangri og það er sérstakt fyrir mig að vera hluti af því. Ég hlakka til að leggja hart að mér á allan hátt í vetur, til að tryggja að ég verði tilbúiinn fyrir fyrstu æfingarnar og fyrsta mótið,", sagði Pic.
Formúla Íþróttir Mest lesið Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti Danmörk - Þýskaland | Alfreð ætlar að stöðva heimsmeistarana Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Handbolti Sér í gegnum Dag: „Hann er bara að segja þetta til að spila með Íslendinga“ Handbolti Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira