Lehmann: Afar leiðinlegt að horfa á City spila Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. desember 2011 15:30 Jens Lehmann er með munninn fyrir neðan nefið.
Markvörðurinn þýski, Jens Lehmann, er örugglega hæstánægður með að Manchester City er fallið úr leik í Meistaradeild Evrópu þar sem honum þykir margt annað skemmtilegra en að horfa á City-menn spila fótbolta. City vann í gær 2-0 sigur á Bayern München en féll engu að síður úr leik. „Manchester City spilar mjög, mjög leiðinlegan fótbolta,“ sagði Lehmann sem var á mála hjá Arsenal á sínum tíma. „Þeir svæfa andstæðinginn með því að halda boltanum innan liðsins. Það er ekki mjög krefjandi leikstíll. Þeir spila á sama máta og áhugamenn, nema bara á betra grasi.“ „Þeir fjölmenna fyrir aftan boltann, spila fimm gegn tveimur og gefa boltann þangað til að marktækifærið kemur.“ „Það er heldur engin stemning á leikvanginum þeirra. Stuðningsmennirnir eru mjög hljóðlátir. Það er í raun ekkert spennandi í gangi hérna. Þeir voru mikið með boltann og mikið á eigin vallarhelmingi þar sem ekkert var að gerast. Þetta er mikil synd því þetta er ekki dæmigert fyrir enska knattspyrnu.“ „Napoli er lið með hjarta og ástríðu. Ég er mjög hrifinn af Napoli. Það er gott að liðið komast áfram og að við þurfum ekki að horfa á Manchester City í Meistaradeildinni í vetur.“
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira