Wilshere: Minn besti dagur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. febrúar 2011 16:45 Nordic Photos / Getty Images
Jack Wilshere segir að dagurinn í gær hafi verið sá langbesti hjá sér síðan hann gekk til liðs við Arsenal. Wilshere átti stórleik þegar að Arsenal vann 2-1 sigur á Barcelona í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Börsungar höfðu 1-0 forystu í hálfleik en þeir Robin van Persie og Andrei Arshavin skoruðu mörk Arsenal í síðari hálfleik. „Síðustu vikur hafa verið brjálaðar og þetta toppar sennilega allt," sagði Wilshere við enska fjölmiðla eftir leikinn í gær. „En þetta er ekki búið enn. Við eigum enn síðari leikinn eftir og við verðum að ná góðum úrslitum á útivelli til að komast áfram í fjórðungsúrslitin." „Það kom 20 mínútna kafli í síðari hálfleik þar sem við náðum einfaldlega ekki boltanum af þeim." „Það kom okkur ekki á óvart. Við þurftum bara að halda það út, verjast vel og beita skyndisóknum. Það er nákvæmlega það sem við gerðum." Það var frábær stemning á Emirates-vellinum í gær og hetja Arsenal-liðsins, Andrei Arshavin, segir að hann hafi aldrei upplifað annað eins á vellinum. „Stemningin hefur aldrei verið betri síðan ég kom hingað. Ég er ánægður með markið sem ég skoraði og það gefur okkur sjálftraust fyrir síðari leikinn. Við verðum að hafa trú á því að við getum nú farið til Barcelona og komist áfram - annars er það til einskis."
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira