Selja 7% hlut hvor Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. júlí 2012 21:08
Stjórnendur Eimskips staðfestu í kvöld frétt Stöðvar 2 og Vísis að stærstu hluthafar félagsins, gamli Landsbankinn og Yucaipa, hyggjast selja 14% hlut í félaginu. Kaupverðið er 5,7 milljarðar króna. Hvor aðili um sig selur 14 milljónir bréfa en kaupandinn er Lífeyrissjóður verslunarmanna. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Eimskip að Straumur fjárfestingabanki hafði milligöngu um viðskiptin sem fara fram í undanfara að mögulegri skráningu Eimskips í kauphöll. Eimskip telja að viðskiptin falli vel að þeim áformum félagsins og með þeim breikkar hluthafahópur Eimskips. Eftir viðskiptin á Lífeyrissjóður verzlunarmanna samtals 14,6% hlut og er þriðji stærsti hluthafi Eimskips á eftir Yucaipa sem samtals á 25,3% hlut og Landsbanka Íslands sem á um 30,3% hlutafjár. Í tilkynningunni segir jafnframt að undirbúningur að mögulegri skráningu Eimskips á NASDAQ OMX Iceland gangi vel. Gert sé ráð fyrir því að fram fari almennt hlutafjárútboð samhliða skráningu þar sem fjárfestum og almenningi gefst kostur á að eignast hlut í félaginu. Fyrirhugað er að skráning fari fram á síðasta ársfjórðungi þessa árs.
Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira