Andri Þór lék fyrri níu á Kiðjabergi á 3 höggum undir pari Valur Jónatansson skrifar 17. ágúst 2012 13:02 Andri Þór Björnsson úr GR. Mynd/Valur Jónatansson
Andri Þór Björnsson úr GR hefur verið að leika best á fyrsta hring í karlaflokki á stigamóti GSÍ, sem hófst á Kiðjabergsvelli í morgun. Hann lék fyrri níu á 3 höggum undir pari - var með fimm fugla og tvo skolla. Reiknað er með að fyrsta hring ljúki um klukkan þrjú í dag. Veðrið hefur leikið við keppendur og Kiðjabergsvöllur skartar sínu fegursta. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR hefur leikið best í kvennaflokki það sem af er – var á einu höggi undir pari eftir 9 holur, en hún var 2 undir eftir aðeins 3 holur. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK er að parinu eftir fyrri níu. Einar Haukur Óskarsson úr GK og Arnar Snær Hákonarson úr GR voru á tveimur höggum undir pari eftir 11 holur og Ólafur Björn Loftsson úr NK lék fyrri níu í dag á einu höggi undir pari . Þeir Alfreð Brynjar Kristinsson úr GKG og Sigurþór Jónsson úr GOS voru á parinu eftir 9 holur. Hlynur Geir Hjartarson úr GOS og Gísli Þór Þóðarsson úr GR voru á parinu eftir 11 holur. Hægt er að fylgjast með skori keppenda á www.golf.is og er skorið uppfært á þriggja holna fresti.
Golf Mest lesið Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Biður Dag afsökunar Handbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Handbolti Féll á lyfjaprófi rétt fyrir Ólympíuleika í heimalandinu Sport Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Fótbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Enski boltinn Fleiri fréttir LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira